SYDNEY + PEEL WEEK
Jú sælt veri fólkið og gleðileg jólin!! Takk fyrir gott ár
og velkomin aftur eftir rúmlega tveggja mánaða „pásu“ og ég hef enga betri
afsökun en að það er bara búið að vera mikið að gera. Ég ætla að skipta þessum
mánuðum niður í parta og byrja á því að segja ykkur frá því þegar ég fór ásamt
10 skiptinemum til Sydney og keyrðum til baka (tæplega 4 þúsund km). Við
byrjuðum á því að taka vélina til Sydney. Þegar við mættum á áfangastað
tékkuðum við okkur inn og byrjuðum strax að skoða okkur um. Við fórum niður í
bæ á bryggjuna og tókum svo ferju sem sýndi okkur stóru brúna og óperu húsið. Svo borðuðum við kvöldmat á
bryggjunni og héldum heim. Næsti dagur var frekar pakkaður því við fórum á brúna
og gerðum nokkuð sem kallast „Bridge climb“ og við fengum leiðsögumann til að
taka okkur í gegnum óperu húsið. Klifrið var alveg æðislegt, útsýnið með því
besta sem ég hef séð og góð reynslusaga í bakpokann. Þegar við komum niður þá
tók við óperu húsið fræga... Við fengum leiðsögn og kíktum inn í nokkra salina
sem var bara fínt. Þetta var ekkert stórkoslegra en Harpan en að utan er það virkilega
flott. Það sama kvöld fórum við út að borða á bát sem sigldi um meðan við
snæddum kvöldverð. Það var alveg æðislegt að sjá brúna og öll ljósin um kvöld
og sigla um, alveg geggjuð upplifun! Næsta dag fórum við svo á stað sem kallast
„Blue Mountains“ þar sem við eyddum deginum að skoða okkur um í umhverfi með
mikið af trjám og fjöllum. Svo seinasta daginn þá byrjuðum við á því að fara á
markað sem virkar mjög svipað og kolaportið, þar keypti maður minjagripi og fleira
svoleiðis. Síðan í hádeginu fórum við upp í hæsta turninn í Sydney og gæddum
okkur á fínasta hlaðborði þar sem ég smakkaði meðal annars krókódílapylsu en
það var alls ekkert spes, frekar þurrt kjöt. Á meðan maður var að borða þá
snérist turninn hægt í hringi svo maður sá yfir alla borgina, ekkert smá fínt
útsýni. Um eftirmiðdaginn skelltum við okkur svo á frægustu strönd í Ástralíu
eða Bondi beach, hún var venjuleg miðað við þær sem ég er búin að sjá hérna en
var samt mjög ánægð með að hafa séð bondi (:
Þá er Sydney ferðalagið á enda en við vöknuðum eld snemma
næsta dag til að taka einka rútu alla leiðina til Perth! Það ferðalag var mjög
sérstakt, útsýnið var fjölbreytt og við fengum að sjá mikið af nýjum hlutum.
Ferðin tók 7 daga og við þurftum að sofa á gólfinu í rútunni á einangrunardýnum,
pissa og kúka úti, fengum að fara í sturtu 2 sinnum og í bæði skiptin í 5
mínútur (með því að gera sig til fyrir og eftir), elda einfaldan útilegu mat og
fleira í þeim dúr. Það var ekki það skemmtilegasta að sitja í rútu í 7 daga en
góður félagskapur gerði gæfumun! Ekki eitthvað sem ég myndi gera aftur en
klárlega eitthvað sem ég hefði ekki viljað missa af. Við stoppuðum á fullt af
stöðum með myndatækifærum og langflestir Ástralir hafa ekki einu sinni prufað
þetta.
Þegar við komum til baka tók við vika af vatnssporti og
fleiru skemmtilegu með öllum skiptinemunum 13 (tók samt fyrst góða sturtu;)). Til
dæmis fórum við á kanó, surf, prufuðum mismunandi sundlaugar, life saving club,
fórum á ströndina og margt margt fleira.
Þá eru þessar þrjár vikur á enda og þetta var allt saman frábært ævintýri sem ég er mjög þakklát fyrir að hafa fengið að upplifa. Annars er ég bara búin að vera í sumarfríi og ég þarf að segja ykkur frá því sem ég hef verið að gera í fríinu í annarri færslu, vonandi bráðlega J Takk fyrir að lesa!!
Þá eru þessar þrjár vikur á enda og þetta var allt saman frábært ævintýri sem ég er mjög þakklát fyrir að hafa fengið að upplifa. Annars er ég bara búin að vera í sumarfríi og ég þarf að segja ykkur frá því sem ég hef verið að gera í fríinu í annarri færslu, vonandi bráðlega J Takk fyrir að lesa!!
ps. ef þið hafið áhuga þá bjó einn skiptineminn til myndband úr ferðinni, skil eftir link hérna
https://www.youtube.com/watch?v=fLg7UR1q-vo
No comments:
Post a Comment