Bollywood
Húsið
Ástralskur bolti
Skiptinemar Manjimup í blaðinu
Jæja nú eru liðnir tveir mánuðir og ég biðst afsökunar á því
að vera ekki búin að blogga meira, það er búið að vera mikið að gera og tíminn
líður mjög hratt! Nú er maður farin að kynnast aðeins fleiri krökkum og helgina
eftir að ég skrifaði seinast fórum við Layla með 2 strákum úr skólanum sem
heita Jacob og Jesse í mini golf, borðtennis, airhokkí og fleira skemmtilegt.
Sömu helgi var mér boðið í Bollywood party hjá einni vinkonu sem heitir Raghavi
og er frá Indlandi en hefur búið hérna síðan hún man eftir sér. Foreldrar
hennar voru að halda þetta og hún fékk að bjóða mér með. Þetta var mjög
skemmtileg upplifun og það voru indverskir kjólar, matur og allur pakkinn. Á
mánudeginum fór ég svo á Rótary fund en það er búist við því að við komum í
hverri viku á fund. Það er þó í góðu lagi þar sem fólkið er mjög fínt og við
Layla erum saman. Á þriðjudeginum prufaði ég svo skvass með sömu strákum og það
var mjög fínt, öðruvísi en ég hélt, maður þarf að læra tæknina en gaman að
prufa J
Svo erum við Layla búnar að fara að horfa á ástralskan fótbolta tvær helgar í
röð og seinni helgin var úrslit og þá voru til dæmis strákar úr okkar árgangi
að spila. Það er mjög skemmtilegt að horfa á þessa íþrótt þegar maður er búin
að læra aðeins á reglurnar. Svo er ég búin að fara á ostagerðarnámskeið sem var
frekar spes og langdregið en góð reynsla engu að síður, við fórum í leikhús, ég
fór út í fótbolta með nokkrum strákum sem var alveg nauðsynlegt fyrir mig því
ég sakna þess alveg afskaplega mikið,
horfði í fyrsta sinn á leik af netball þar sem vinkona mín Jordy var að spila
en hún mun koma til Íslands í janúar sem skiptinemi, og margt fleira. Í
seinustu viku fór ég svo í heldur betur spennandi göngu með áfanga í skólanum
og til Perth að hitta alla skiptinemana í þessu umdæmi. Ég ætla að gera sér
bloggfærslu um það tvennt sem kemur vonandi bráðlega! Svo var fyrsta
fótboltaæfing tímabilsins í gær og það var ekki minna en 25 stiga hiti, sól og
logn. Eins og þið getið ímyndað ykkur var stelpan frá Íslandi auðvitað að
þrauka í gegnum veðrið og svitnaði eins og ég veit ekki hvað. En það var
frábært að komast loksins á alvöru æfingu en við æfum stelpur og strákar
blandað svo það er nýtt og skemmtilegt og ætti að geta bætt leikinn hjá manni J Annars er allt voða
gaman og gott hérna down under og frí er ekki langt undan en við fáum 2 vikur í
frí sem byrja á morgun. Þá förum við Layla til Perth og ætlum að skoða okkur
aðeins um. Ég er mjög ánægð hérna og ég var ekkert smá glöð eftir æfingu
gærdagsins því ég sé fram á gott og
skemmtilegt tímabil.
Og talandi um fótbolta þá er kjellan orðin Íslandsmeistari með FH, frábær hópur sem ég er mjög stolt af að vera hluti af!! Já heyrðu gleymdi líka að segja ykkur að við vorum í blaðinu!! Tékkið á myndunum að ofan J Annars þakka ég fyrir lesturinn, ég er að hugsa um að skella í eitt stykki myndaalbúm á facebook fyrir fólk sem er áhugasamt um lífið hérna og svo getið þið líka followað mig á instagram og addað mér á snapchat ef vilji er fyrir hendi en ég er snaedisloga á báðu ;)
Og talandi um fótbolta þá er kjellan orðin Íslandsmeistari með FH, frábær hópur sem ég er mjög stolt af að vera hluti af!! Já heyrðu gleymdi líka að segja ykkur að við vorum í blaðinu!! Tékkið á myndunum að ofan J Annars þakka ég fyrir lesturinn, ég er að hugsa um að skella í eitt stykki myndaalbúm á facebook fyrir fólk sem er áhugasamt um lífið hérna og svo getið þið líka followað mig á instagram og addað mér á snapchat ef vilji er fyrir hendi en ég er snaedisloga á báðu ;)
Bestu kveðjur, Snædís :D
No comments:
Post a Comment